Greinarhöfundur var í heimsókn hjá barnabörnum í Örebro yfir jólahátíðina og við brugðum okkur niður í miðbæ til þess að sjá stórkostlega ljósasýningu sem var varpað á stóra sögufræga höll frá miðri 14 öld. (Örebro slott)

Þetta er um 10 mínútna sýning þar sem tölvustýrðum myndum sem eru aðlagaðar að formi hallarinnar er varpað á veggi og glugga og sögð er saga þar sem höllin bæði brennur og hrynur en þetta endar allt vel með mynd sem er eins og jólakort með ósk um gleðileg jól.

Ísold,  3 ára barnabarn mitt varð hrædd og leist ekkert á þennan hávaða sem fylgdi sýningunni með tónlist og syngjandi músum svo hún forðaði sér  bak við húshorn, afi Nonni bauðst til að taka fullt af myndum fyrir hana og sýna henni þegar við kæmum heim.

Datt í hug að leyfa ykkur að sjá þetta líka úr því að ég varð að taka svona margar myndir, sú hugmynd skaust upp í kollinn á mér þegar ég stóð þarna í allri þessari ljósadýrð að það væri nú gaman að sjá svona sýningu varpað í heila snjóþakta fjallshlíð heima á Sigló í fallegri vetrarstillu.

Mikið var um litadýrð og tvær syngjandi mýs skemmtu börnunum.

Gamla góða Packman spilið komið á höllina.

Nammi höll eða auglýsing fyrir Candy crusch spilið ?

Og kastalinn brann……

Og hrundi líka….

En þetta endaði allt vel í fallegu jólakorti.

 

Örebro er þekkt fyrir sín götulistaverk í öllum stærðum og gerðum og það er mikilvægt að borgarbúum líði vel í fallegu umhverfi og jólaskreytingarnar í ár voru virkilega fallegar.

Læt nokkrar ljósmyndir í viðbót fylgja þessum orðum eftir.

 

Dásamlega fallegt “Jólatré” við eitt af mörgum torgum í miðbænum.

Falleg jólakúla sem fólk getur sest inn í.

Eitt af mörgum götulistaverkum borgarinnar stendur við húsvegg, lítil sæt mörgæs sem einhver góðhjartaður borgarbúi hefur prjónað húfu og trefil á.

Draugalega upplýst Dómkirkjan er falleg en minnir mig á kirkjuna sem var í frönsku draugaþáttunum “Bel-fi-gor” sem voru sýndir í svarthvítu sjónvarpi heima á Hafnartúni 6 veturinn 1969 minnir mig. Er enn þá myrkfælinn eftir að hafa séð þessa þætti sem barn.

 

Lifið heil.

Kær kveðja.

Nonni Björgvins

LISTA YFIR AÐRAR GREINAR EFTIR JÓN ÓLAF BJÖRGVINSSON FINNUR ÞÚ HÉR.

TEXTI OG LJÓSMYNDIR:
JÓN ÓLAFUR BJÖRGVINSSON