Selarannsóknir
Þrír starfsmenn Hafrannsóknarstofnunar eru með starfsstöð á Hvammstanga og sinna þeir selarannsóknum í samstarfi við Selasetur Íslands. Í júní síðastliðnum fluttu þeir í nýtt húsnæði á þriðju hæð að Höfðabraut 6. Á heimasíðu Hafrannsóknarstofnunar segir að með flutningnum batni aðstaða starfsfólks hjá starfsstöðinni frá því sem áður var og gefur aukna möguleika á samstarfi og samskiptum. Á vef Selaseturs Ísland segir meðal annars „Meginverkefni líffræðirannsóknasviðs eru rannsóknir á selastofnunum við Ísland. Meðal verkefna eru vöktun á stofnstærðum útsels og landsels við Ísland og rannsókn á fæðuöflun sela, ásamt áhrifum sela á fiskistofna við landið. Frekari upplýsingar um rannsóknarverkefni sviðsins...
Lesa meira